Skrifstofa og starfsfólk
Posted by admin on Sunnudagur, maí 15, 2011 · Leave a Comment

Skrifstofa Félags einstæðra foreldra er til húsa að Túngötu 14, 101 Reykjavík. (ATH ný staðsetning)
Sími: 551-1822, netfang: fef@fef.is. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 13-16.
 |
Kristín Tómasdóttir, Formaður FEF
Kristín starfar sem ráðgjafi hjá Geðhjálp og er framkvæmdarstjóri Landssambands Æskulýðsfélaga
netfang: stjorn@fef.is |
 |
Laufey Ólafsdóttir, Varaformaður FEF
Laufey bjó um árabil í Bretlandi og lagði þar m.a. stund á dans og fatahönnun. Laufey hefur lengst af starfað í skemmtanageiranum en einnig gripið í ritstörf. Hún lauk stúdentsprófi af félagsfræðibraut frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla í lok 2005 og hefur síðan verið með annan fótinn bæði í fjölmiðlunarnámi og Lögfræðideild HÍ. Á tvær dætur og hefur verið einstæð móðir síðan 1995
netfang: laufey@fef.is |
 |
Oktavía Guðmundsdóttir, Félagsráðgjafi FEF
Oktavía útskrifaðist frá Danmörku árið 1983, lauk masternámi í félagsráðgjöf frá Svíþjóð árið 2002. Oktavía hefur unnið m.a. á félags- og geðheilbrigðissviði jafnt með börn, unglinga og fullorðna. (Barna og unglingadeild frá 1996 – 2006). Oktavía á 3 syni og fjögur barnabörn.
netfang: oktavia@fef.is |
 |
Katrín Theódórsdóttir, Hdl
Útskrifaðist frá HÍ með embættispróf í lögum árið 1990 og árið 2000 lauk hún mastersnámi í alþjóðalögum og smanburðarlögfræði frá University of San Francisco School of Law. Katrín hefur m.a. unnið sem lögfræðingur á fasteignasölu, starfað sem framkvæmdarstjóri þingflokks og rekur í dag eigin lögmannsstofu. Frá árinu 1988 til 1999 var Katrín lögfræðingur Félags einstæðra foreldra. Á þeim tíma veitti hún félagsmönnum lögfræðiráðgjöf, ritaði greinar um rétt einstæðra foreldra í blað félagsins svo eitthvað sé nefnt. Fyrir atbeina Katrínar hóf félagið að veita foreldrum barna aðstoð við samninga um umgengni með því að veita þeim viðtalstíma þar sem lögfræðingur og félagsráðgjafi FEF komu báðir að. Katrín hóf aftur að vinna fyrir FEF í lok árs 2006. netföng: logron@logron.is og ktheodors@logron.is |
 |
Guðlaug Jóhannsdóttir, Ritari hjá FEF
Guðlaug hefur m.a. sótt námskeið í fatahönnun, ljósmyndun, stofnun fyrirtækja og heimasíðugerð svo eitthvað sé nefnt. Guðlaug hefur unnið við myndvinnslu og á veitingarstöðum síðastliðin 17 ár. Guðlaug á einn son
netfang: gulla@fef.is |
 |
Morten Lange, Varamaður í stjórn
Morten ólst upp í Ósló, auk tveggja ára í Tanzaníu. MSc frá Norges Tekniske Høgskole (núna NTNU). Flutti til Íslands 1995.
Stjórnarmaður í Landssamtökum hjólreiðamanna, í Samtökum áhugafólks um umhverfi og vellíðan og í Íbúasamtökum Laugardals.
Vinnur í tölvugeiranum.
netfang: stjorn@fef.is |