Þjónustan

Vesturgata 5, Félag einstæðra foreldra

Félag einstæðra foreldra stendur fyrir fjölþættri þjónustu fyrir félagsmenn. Kynntu þér það nánar og gakktu í félagið.

Umsókn

Sæktu um í fef.is

Með því að gerast félagi í Félagi einstæðra foreldra færð þú aðgang að víðtækri þjónustu og ráðgjöf auk aðildar að samfélagi sem veitir styrk og gleði. Félagsgjaldið er 3000 kr. og gildir í 1 ár frá dagsetningu greiðslu. Reikn: 0111-26-272150, Kt.: 490371-0289. Bankakvittun sendist í viðhengi á umsokn@fef.is * upplýsinga er krafist Netfang: * Fornafn: [...]

Styrkja félagið

Styrkja fef.is

Félag einstæðra foreldra tekur með þökkum á móti öllum styrkjum, smáum sem stórum. Þeir sem vilja aðstoða félagið fjárhagslega geta lagt inn á reikning félagsins. Reikn: 0111-26-272150, Kt.: 490371-0289. Bankakvittun sendist í viðhengi á stjorn@fef.is Takk kærlega fyrir.

Núna

Tilkynningar fef.is

Gaman saman, taktu þátt í góðu starfi!

Aðalfundur Félags einstæðra Foreldra verður haldinn þann 8. september, 2011.
Fundurinn verður haldinn á Glætunni, Laugavegi 19, 2. hæð og hefst kl. 19:30.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Lögum félagsins er aðeins hægt að breyta á aðalfundi og verða tillögur til lagabreytinga að liggja fyrir hjá stjórn eigi síðar en 24. ágúst. Sjá lögin hér á heimasíðunni.

Eldmóður, áhugi og baráttuhugur eiga vel heima í stjórn félagsins. Við hvetjum áhugasama til að bjóða sig fram til stjórnarsetu og alla félagsmenn til að fylkja liði um félagið sitt til eflingar því góða starfi, sem þar hefur verið unnið.

Endilega hafið samband við okkur ef þið viljið vita meira um starf stjórnar og félagsins.

Kristín Erna s.898-7378
Laufey s.588-4009

Þjónusta

  • Námsstyrkir

    “Námsstyrkir fyrir haustönn 2011″ - Sækið um núna!

    Félag einstæðra foreldra úthlutar úr námssjóði fyrir haustönn 2011 í október n.k.  Félagsmenn í  F.E.F. í námi eru hvattir til að sækja um.

  • Vesturgata 5, Félag einstæðra foreldra

    Skrifstofa og starfsfólk

    Skrifstofa Félags einstæðra foreldra er til húsa að Túngötu 14, 101 Reykjavík. (ATH ný staðsetning) Sími: 551-1822, netfang: fef@fef.is. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 13-16. Kristín Tómasdóttir, Formaður FEF Kristín starfar sem ráðgjafi hjá Geðhjálp og er framkvæmdarstjóri Landssambands Æskulýðsfélaga netfang: stjorn@fef.is Laufey Ólafsdóttir, Varaformaður FEF Laufey bjó um árabil í Bretlandi [...]

  • Móðir og barn

    Móðir og barn

    Meðganga-móðir-barn er verkefni sem unnið er á vegum Félags Einstæðra Foreldra Meðganga–móðir–barn er stuðningshópur fyrir ungar mæður í barnseignarferlinu

  • fef.is

    Um félagið

    Félagið var stofnað í nóvember árið 1969 og voru stofnfélagar 300 talsins. Félagið hefur barist fyrir réttindum einstæðra foreldra og staðið vörð um hagsmuni þeirra og barna þeirra allar götur síðan.